Bókasafn Byggðasafn Fiska- og náttúrugripasafn Listasafn Ljósmyndasafn Héraðsskjalasafn
   Franska    Enska    Danska    Þýska












Pompei norðurins

Vestmannaeyjabær

../ forsíða /
19.01.10 | 13:12
Í tilefni af gosdeginum
  
  
Næsta laugardag, þann 23. janúar, verður opið á á Byggðasafni Vestmannaeyja. Í Pálsstofu verður sýnd heimildamynd Páls Steingrímssonar,  „5000 óboðnir gestir“ sem fjallar um eldgosið sem hófst í Vestmannaeyjum fyrir réttum 37 árum. Myndin hefst stundvíslega á heila og hálfa tímanum. Í anddyri Safnahússins  verða spilaðar upptökur af hinum vinsælu Eyjapistlum, fréttaþáttum Arnórs og Gísla Helgasona.
Opið verður frá 11-14 og er aðgangur ókeypis.
Verið hjartanlega velkomin.

26.06.09 | 15:30
Vill gefa mormónasýningu til Eyja
  
  

Vesturfarasetrið á Hofsósi vill gefa mormónasýningu til Vestmannaeyja. Forstöðumaður Bókasafnsins í Eyjum sér sóknarfæri í því að ná tengingu við tugþúsundir afkomenda Eyjamanna í Bandaríkjunum.

Bandarískur prófessor í trúabrögðum, sem hefur skrifað bók um íslenska mormóna, hefur verið að kenna sögu mormónakirkjunnar í Háskóla Íslands. 400 Íslendingar tóku mormónatrú og fluttu til Utah á 60 ára tímabili frá frá 1854 til 1914. Helmingur þeirra kom frá Vestmannaeyjum.

Prófessor Fred E. Woods sagði á fyrirlestri í Vestmannaeyjum á dögunum að skýring þess að svo margir hefðu elt trúboðana frá Vestmannaeyjum til Utah gæti verið sú að íbúar sem lifðu í svo mikilli nálægð við náttúruöflin væru opnari fyrir hugmyndinni um tilvist æðri máttarvalda.

Mormónakirkjan heitir réttu nafni „Kirkja Jesú Krists, hinna Síðari daga heilögu."  Samkvæmt mormónatrú var frumkirkja Jesú endurreist á fyrri hluta 19. aldar í tengslum við landnám mormóna í Utah-ríki Bandaríkjanna.
 
Í Vestmannaeyjum eru varðveitt bréf sem send voru frá Utah til ættingja hér heima. Kári Bjarnason, forstöðumaður Bókasafns Vestmannaeyja, sér sóknarfæri í því að flytja mormónasýningu Vesturfarasetursins á Hofsósi til Eyja. Með því megi ná tengslum við tugþúsundir afkomenda Eyjamanna í Bandaríkjunum sem hafi áhuga á því að kynna sér slóðir forfeðranna. Valgeir Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Vesturfarasetursins á Hofsósi, segir umhverfið í Vestmannaeyjum einstakt til að fræða fólk um sögu íslensku mormónanna sem voru að stórum hluta Eyjamenn.


17.04.09 | 10:57
Eldur á ís
  
  

(Saga hinna íslensku Síðari daga heilögu heima og að heiman)

Einstakt tækifæri til kynningar á einstöku riti

Laugardaginn 18. apríl kl. 14.00 mun Fred E. Woods, prófessor við Religious Studies Center við Brigham Young háskólann í Utah í Bandaríkjunum halda fyrirlestur um bók sína “Eldur á ís” : saga hinna íslensku Síðari daga heilögu heima og að heiman, á Bókasafninu. Til stuðnings fyrirlestrinum mun prófessor Woods sýna á skjávarpa myndir og annað spennandi efni er tengist þessari merkilegu sögu..

Bókin kom fyrst út hjá Religious Studies Center við Brigham Young University í Utah árið 2005 undir nafninu “Fire on ice” : the story of Icelandic Latter-day Saints at home and abroad. Íslenska þýðingin kom svo út árið 2007 á vegum Háskólaútgáfunnar í Reykjavík, og var þýðandi hennar Friðrik Rafn Guðmundsson.

Bókin segir 150 ára sögu mormóna á Íslandi og í Utah og fjallað er sérstaklega um tengsl trúskiptinganna í Spanish Fork í Utah við heimaland sitt Ísland. Saga þessi hófst upprunalega með trúboði Guðmundar Guðmundssonar, gullsmiðs og Þórarins Hafliðasonar, trésmiðs í Vestmannaeyjum árið 1851, en talið er að áður en yfir lauk árið 1914 hafi um 400 Íslendingar sest að í Utah og gerst mormónatrúar. Samkvæmt prestþjónustubókum Vestmannaeyja flutti alls 191 Vestmannaeyingur til Utah á árunum 1852-1892, en samkvæmt Húsvitjunarbók Vestmannaeyja 1849-1852 voru íbúar í Vestmannaeyjum alls 404 árið 1850.

Fyrirlesturinn fer fram á Bókasafni Vestmannaeyja og hefst eins og áður segir kl. 14:00 og er öllum opinn, ókeypis. Eru áhugamenn um sögu Vestmannaeyja hvattir til þess að láta þetta einstaka tækifæri ekki fram hjá sér fara.

Í tilefni af heimsókn Woods prófessors verður jafnframt sett upp sýning er tengist efninu á Bókasafninu.

 

Verið velkomin

Bókasafn Vestmannaeyja

Byggðasafn Vestmannaeyja

Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja


27.02.09 | 10:48
Dagskrá í Safnaðarheimili Landakirkju
  
  
Sunnudaginn 1. mars er minningardagur séra Ólafs Egilssonar er andaðist þann dag árið 1639. Af því tilefni stendur Sögusetur 1627 í samstarfi við bókasafnið, Grunnskóla Vestmannaeyja og æskulýðsstarf Landakirkju fyrir upplestri á gervallri Reisubók séra Ólafs. Dagskráin hefst sem liður í æskulýðsmessu í Landakirkju sem hefst kl. 14 og heldur áfram eftir messuna í Safnaðarheimilinu kl. 15. Nemendum 7. bekkjar GV og félagar í æskulýðsstarfi Landakirkju munu skipta með sér lestrinum að stærstum hluta. Auk þess stendur hverjum sem vill til boða að koma og skrá sig í upplesturinn á staðnum.
Verið hjartanlega velkomin að hlýða á upplesturinn á Reisubók sr. Ólafs. Kaffi og meðlæti verða á boðstólnum á hagstæðu verði. Allur ágóði rennur til æskulýðsstarfs Landakirkju

eldri fréttir..

 

Útgefandi:  Bókasafn Vestmannaeyja          Vefstjóri:   Kári Bjarnason